the roof is on fire
08. september 2007 klukkan 21:22
aaa ég bara get þetta ekki lengur.. ég er komin með fráhvarfseinkenni haha... og ég ætla sko ekki að láta kalla mig aumingja... hehhe en dagurinn í dag var speeees ég var að vinna í allan dag og við vorum bara fjórar á vakt af seks og það var ERFITT... maður stóð á haus og það var BRJÁLAÐ að gera.. sjett...
svo um hádegi þá er ég eitthvað í afgreiðslu þegar ég heiri í stelpu sem vinnur með mér og var að skera brauð" hva djöfull er þetta hart brauð.. þetta fer bara ekki í gegn".. svo togaði hún fast í handfangið aftur og aftur og svo... ROSA reikur og brunalegt... svo fer hún eithvað að glápa og segir " hva ég held það sé bara að kvikna í þessu hérna"... mér brá svo að ég stökk úr miðri afgreiðslu og kíkji.. þá hafi viðardolla dottið niður með brauðinu og farið í hnífana svo hún var að skera timbur... hnífarnir hitnuðu svo mikið að það KVEIKNIÐI í dollunni.. ég alveg aaaa og næ í glas með vatni og skvetti á þetta.. og það bara sauð
hahahaha
jii.. mér brá svo að ég titraði alveg:P.. þetta er samt geggjað findið eftirá hehe... en allavega ég er aftur farin chao
someone:/
03. september 2007 klukkan 19:44
hmm .. ég sé að enginn er farinn að sakna þess að fá smá blogg svo ég ætla að taka mér smá hlé frá þessari síðu.. veit ekki hve langan tíma.. bara smá hlé.. chao
hlaupa hlaupa hlaupa
25. ágúst 2007 klukkan 13:46
voða eru föstudagar þæginlegir í skólanum.. ég mæti klukkan tíu og er búin hálf eitt.. nææs:D.. í gær kom ég svo heim eftir skóla og gerði gjörsamlega ekki neitt. .hehe.. um kvöldið var maður bara í chilli og sötraði bjór með pabba og mömmu og svo rölti ég til hennar úlfhildar.. var þar í smá tíma og svo fór hún og kærastinn í innflutningsparty.. ég kom heim og horfði á eina bíómynd og steinsofnaði svo..
ég fór framúr í morgun klukkan tíu.. mamma kom heim þegar ég vaknaði, þá hafi hún bara skellt ser í leikfimi.. dugnaðurinn á þessu heimili.. ég fékk svo mikið samviskubit að sitja á rassgatinu og gera ekki neitt að ég fór út að skokka og hljóp heila 5 km.. það var fínt.. ætlaði nú að fara 8 km þar sem ég er búin að gera það síðustu nokkur skiptin og það er ekkert mál
en eftir skokkið fór ég í sund.. ætlaði að vera rosa dugleg að synda smá en þegar ég kom var troðið í sundi... allir Leiknisstrákarnir, gamla fólkið að hreifa sig og ungbarnasund.. hitti meira að segja Ernu með litlu prinsessuna sína:D.. algjör dúlla.. henni varð svo kallt að hún titraði og kjökraði þarna.. hehe
ég kom svo heim milli hálf eitt- eitt og er núna með nefið límt á rúðunni hérna í herberginu mínu þar sem það kom skúkrabíll með látum hingað í götuna.. hann meira að segja skransaði í beygjunni.. hann stoppaði við blokk númer 14 og hlupu út og leituðu að bjöllu... svo kemur fólk öskrandi "ÞAÐ ER Í BLOKK NÚMER 4" hehe þá hlupu þeir af stað en skildu bílinn eftir..
svo eftir smá stund kemur sjúkrabíll númer tvö og leggur náttlega þar sem hinn bíllinn er og þeir stökkva út og að blokkinni og leita að bjöllunni hehe.. þá sé ég að það er eitthvað kallað í gegnum talstöðvarnar og þeir stökkva af stað í blokk númer 4.. svo rétt í þessu var annar bíllinn sóttur og færður að hinni blokkinni svo núna er eins og allir séu að drepast í þessu hverfi því það eru sjúkrabílar útum allt og sjúkraliðar og læknar hlaupandi útá bílaplani hahaha
vona bara að þetta sé ekkert alvarlegt:).. þetta er í annað sinn sem þeir koma í vikunnni og ég veit alveg hver þetta er sem er veikur... bara vona það besta:)
en hvað um það.. djöfull getur fólk verið miklir FÁVITAR... ég fór í kringluna í gær og lagði LENGST í burtu þar sem ENGINN bíll var.. svo sit ég aðeins inn í bíl og er að hlusta á útvarpið þegar það kemur jeppi og leggur ALVEG upp við mig.. eins og það voru ekki nóg af stæðum í kring því það var enginn þarna... kallfjandinn stígur útúr sínum fína jeppa og þrusar hurðinni í hliðina á bílnum mínum.. ég fann bílinn bara hristast:O
ég stökk út og spurði hvort það væri ekki allt í lagi með hann.. hann vissi ekkert hvað hann átti að segja og labbaði í burtu með kellinguna sína.. helv***... ég var svo pirruð og fór að tékka hvort það sást eitthvað á bílnum.. ég sá nú ekkert enda er hann svo skítugur en ég skal lofa ykkur að það kemur í ljós í kvöld af því ég og pabbi erum að fara með bílinn niðrí vinnu til hans og ég ætla að bóna hann.. þetta var ekkert laust högg sko.. arrg
ég hefði bara átt að sparka í rassgatið á þessu kallgerpi hehe:P
en já ég er farin að læra.. jújú skólinn byrjaður á fullu og lærdómnum hellt yfir mann strax
MYNDIR
24. ágúst 2007 klukkan 14:58
jæja ég er að setja fleiri myndir inn.. aðalega frá sumrinu svo verði ykkur að góðu:P
gaktu hćgt um gleđinnar dyr
22. ágúst 2007 klukkan 22:22
það er nú meira hvað maður getur dottið úr bloggskapi.. en síðasta helgi var algjör snilld... þó það var nú ekki neitt djammað hehe.. en ég og Sandra gerðum margt og mikið saman.. á föstudeginum fórum við á tónleikana á Laugardalsvellinum og vá þeir voru snilld.. og Söndu fannst rosa gaman sem betur fer því hún þekkir náttúrulega ekkert þessar hljómsveitir..
á laugardaginn var vaknað snemma og farið í töflubreitingu.. jújú ég fékk ekki það sem mig vantaði og aðeins 17 einingar.. ohh vesen.. en eftir það var farið í bakaríið og keypt nýtt brauð og svo farið heim að gera allt reddí fyrir afmælið hennar Söndru.. kellingin orðin tvítug.. til lukku sæta frænka:D..
við vorum með bröns í hádeginu og nammi hvað maturinn var góður.. um þrjú voru allir farnir og við fórum öll niðrí bæ... þar var ágætt og MIKIÐ labbað.. komum svo heim og fegnum okkur smá nart að borð og svo fór ég og Sandra aftur niðrí bæ um kveldið.. löbbuðum bara um Laugaveginn og fórum svo og horfðum á flugeldanna.. þeir voru æði allavega betri en í fyrra get ég sagt hehe...
við fórum svo bara heim og settumst með familíunni og sötruðum smá bjór.. svo var bara farið að sofa og á sunnudeginum fór ég að vinna... klukkan þrjú fórum við öll í barnaafmæli til Christian Darra frænda sem varð 3ja ára:D... dúllí dú..
svo var farið heim og Sandra, Maggi og Þórunn fóru að pakka.. um kvöldið var matarboð og amma og afi komu líka.. á mánudagsmorguninn flugu þau svo til Svíþjóðar..
ég hef ekkert gert síðan nema kaupa bækur og skreppa til vinkonu minnar og svo byrjaði skólinn í dag... það var svo sem ágætt en það var strax sturtað á manni heimalærdóm.. ojj.. en ég ætla að láta þetta næja chao
annasöm helgi
20. ágúst 2007 klukkan 00:35
þá er helgin á enda, maggi, þórunn og sandra fara á morgun:(.. það er búið að vera svo gaman að hafa þau hérna.. þessi helgi er búin að vera ein sú annasamasta helgi í allt sumar og kemur blog um allt saman á morgun.. við erum búin að sitja hér í stofunni í nokkra tíma að spjalla og GRENJA úr hlátri af honum Magga þar sem hann er nú með eindæmum findinn hehe
en ég nenni ekki að blogga núna ég er farin að sofa góða nótt:P
kann ekki ađ sofa út
16. ágúst 2007 klukkan 09:56
vá ég er komin með svo mikla hreyfiþörf að ég ræð ekki við mig hehe.. ég er eiginlega nývöknuð eftir ROSALEGANN draum.. hann var svo raunverulegur og rosa þýðingarmikill.. ég held ég verði barasta að flétta honum upp
en allavega þá ætla ég að fara út að skokka eftir smá stund og svo ætla ég í sund og þá verða örugglega frændfólk mitt komið heim en þau eru búin að vera á Flúðum síðan í gær.. svo kannski ég finn eitthvað að gera fyrir mig og Söndru en ég og mamma erum að fara með starfsfólki Landsbankans að labba á Nesjavöllum í dag klukkan seks og það verður farið 4,5 km held ég.. ekkert svakalegt og svo verða grillaðar pulsur á eftir
í gær fór ég að skúra og gekk bara rosa vel .. ég var frekar fljót sem var bara ágætt gleimdi mér alveg í þessu og áður en ég vissi var ég bara búin hehe en jæja ég veit ekkert hvað ég á að segja ykkur enda dagurinn rétt að byrja hehe..
komin heim
15. ágúst 2007 klukkan 17:50
þá er maður komin heim í stórborgina, þessi dagur er búinn að vera hinn ágætasti.. við vöknuðum klukkan hálf níu og fórum bar að dunda okkur, við fórum svo í skóginn hjá Tumastöðum í fljótshlíðinni, fórum með hundinn og fengum okkur göngutúr í gegnum skóginn.. það var rosa gaman og hundurinn alveg brjálaður af spenningi.. hehe..
þegar heim kom fór Hekla að klára heimasíðuna sína sem hún bjó til fyrir teikningarnar sem hún er að selja eftir sjálfa sig, ég á eftir að setja linkinn hérna inná,
um tvöleitið lagði ég af stað í bæinn og stoppaði á Selfossi til að fá mér að borða og héllt svo för minni áfram.. jesús það á að banna bíla sem keyra undir 80 á þjóðvegunum á háannartíma... ég var að verða brjáluð og keyrði allavega hálfa leiðina á 70, ég var ekki glöð haha..
svo kom ég heim rétt fyrir fjögur og þá fór ég bara beint í sund aaalein, það var svo sem ágætt ég lá bara og lét mig dreyma og horfði framaní sólina hehe.. ég var svo að koma heim og var að setja myndir í tölvuna sem ég ætla að setja inná myndaalbúmið NÚNA..
p.s. mér finnst alltaf eitthvað svo margar heimsóknir á síðuna mína en ekki eitt einasta comment eða kvitt í gestó.. væri nú alveg til í að fá eitt hæ eða svo , er viss um að ég þekki ykkur flest sem skoða þessa síðu en allavega chao
í sveitasćlunni
14. ágúst 2007 klukkan 11:24
hérna sit ég í tölvunni hennar Heklu, ég fór á Hellu í gær í heimsókn til hennar.. dagurinn byrjaði á að ég fór út að skokka og svo með bílinn til pabba þar sem hann ætlaði að skipta um stýrisolíu á honum, en svo óheppilega vildi til að bíllinn minn bara hreinlega bilaði á leiðinni hahah
ég gat þó keyrt hann heim og fór þá bara á Volvonum austur, ekki leiðinlegt það hehe:D
ég kom loksins i´sveitina og byrjaði á 'Asmundarstöðum þar sem bærinn þeirra er og þar var hún að lónsera hesta og ég fór líka að taka hana upp á myndband á hestbaki því hún er að reyna að selja einn hest..
við komum svo á Hellu um hálf níu leitið og höfðum það bara notalegt hérna og fórum svo að sofa...
við vöknuðum klukkan 06:30 við einhverja helv.. risa flugu og við vorum hoppandi og skoppandi um allt herbergið með bækur á lofti að reyna að drepa hana hahaha það gekk ekkert rosa vel en gátum sofnað aftur um hálf átta hehe
fórum svo framúr klukkan níu og erum búnar að fara út að labba með hundinn og fá okkur að borða og erum núna að taka ljósmyndir af teikningum sem Hekla er búin að teikna og er að fara að selja... ég set kannski einhverjar myndir hérna inn af þeim þegar ég hef tíma.. chao í bili
ég gat þó keyrt hann heim og fór þá bara á Volvonum austur, ekki leiðinlegt það hehe:D
ég kom loksins i´sveitina og byrjaði á 'Asmundarstöðum þar sem bærinn þeirra er og þar var hún að lónsera hesta og ég fór líka að taka hana upp á myndband á hestbaki því hún er að reyna að selja einn hest..
við komum svo á Hellu um hálf níu leitið og höfðum það bara notalegt hérna og fórum svo að sofa...
við vöknuðum klukkan 06:30 við einhverja helv.. risa flugu og við vorum hoppandi og skoppandi um allt herbergið með bækur á lofti að reyna að drepa hana hahaha það gekk ekkert rosa vel en gátum sofnað aftur um hálf átta hehe
fórum svo framúr klukkan níu og erum búnar að fara út að labba með hundinn og fá okkur að borða og erum núna að taka ljósmyndir af teikningum sem Hekla er búin að teikna og er að fara að selja... ég set kannski einhverjar myndir hérna inn af þeim þegar ég hef tíma.. chao í bili
**MYNDIR**
12. ágúst 2007 klukkan 18:41
jæja búin að skella inn nokkrum myndum frá Versló og þessari helgi, þær eru nú ekki margar en njótið vel hehe
helgin í hnotskurn
*fór á players á föstudaginn á kántríkvöld og það var bara nokkuð gaman
*var edrú og driver það kvöld en skemti mér konunglega
*fór að vinna á laugardaginn, út að hlaupa
*fór niðrí bæ að sjá Gay Pride gönguna, það var gaman að sjá þetta en fannst atriðin og showin ekki spes,
*um kvöldið var staffadjamm og hittumst við stelpurnar heima hjá Hafdísi og pöntuðum okkur mat og sötðruðum bjór
*fórum niðrí bæ og vorum á Sólon, ég og Hrönn enduðum einar en það var GEGGJAÐ gaman
*fór heim klukkan 4
*vaknaði um ellefu og er búin að liggja uppí rúmi í ALLAN dag hehe er ekki búin að stíga fæti út í sólina
*sumir voru BRJÁLAÐIR í gær og ég er ekki sátt:S
Þetta var svona það helsta en á morgun ætla ég í sveitina til hennar Heklu minnar og vera í sveitasælunni í einhvern tímam veit ekki hvenær ég kem aftur í bæinn
